Við Jakob og Líf fluttum inn í nýju fínu íbúðina okkar um helgina, ekki númer 15 heldur númer 13 -hún er aðeins stærri og er á endanum sem þýðir að við fáum fleiri glugga, betra útsýni og stæði í bílageymslu…sem er algjörlega yndislegt, aldrei aftur kaldur bíll á morgnanna! Okkur lá svo mikið á að flytja að Jakob henti bara kössunum inn á meðan ég var að vinna 12 tíma vakt á laugardaginn, svo var búið um rúmið og við sváfum fyrstu nóttina heima hjá okkur!! Þó að það hafi allt verið í drasli og engar gardínur held ég að ég geti samt fullyrt að ég hafi aldrei sofið betur. Við erum svo búin að vera að gera fínt hjá okkur og þetta er smám saman að verða heimilislegt. Það er samt einhvernveginn undarlega erfitt að flytja inn í íbúð þar sem má mála, negla og bora í veggi og svoleiðis eftir að hafa verið í leiguíbúðum í langan tíma og þessvegna eru veggirnir okkar ennþá allir tómir. En það er langsamlega besta tilfinning í heimi að vera hérna heima og vita að ég þarf ekki að flytja aftur fyrr en eftir mööööörg ár!
…Allavegana, höldum innflutningspartý þegar við komum heim frá Suður Afríku!

4 comments
Comments feed for this article
september 19, 2008 kl. 11:09 pm
Eva Björk
Góða ferð til Afríku;0). Gallarnir sem þið Jakob keyptuð á þessum spotprís eru þeir sömu og sundfélag Akranes gerði að sínum hérna í den og það þótti ekkert flottara en að eiga einn slíkan. Meira að segja þá hefði 400 krónur verið algjör heppni á lokaútsölu;0). Til hamingju með fínu gallanna
september 27, 2008 kl. 1:22 pm
Hanna Lára
Hæhæhæ….afríkurfarar….nú væri voða gott að fara að fá einhverjar fréttir af ykkur… vona að þið séuð að hafa það súper gott…. bestu kveðjur úr vesturásnum…. knús!
september 29, 2008 kl. 2:30 pm
Sigurlaug og Elísabet Ása
Æðislegt að heyra. Innilega til hamingju, ekki leiðinlegt að fá svona nágranna
Hafið það gott í Afríku, hlökkum til að sjá ykkur þegar þið komið heim aftur. Aldrei að vita nema við mæðgur röltum yfir til ykkar
október 31, 2008 kl. 7:12 pm
HANNA PANNA
er að bíða og bíða og bíða…..vil fá ferðasögu og myndir takk fyrir pent!!!
og svo góða skemmtun á morgun bleika fegurðardrottning!! kveðja Hannsína Löve