Stiklað á stóru yfir það sem er búið að vera að gerast….
-Vinnuálagið á sjúkrahúsinu á Neskaupstað leiddi til þess að við Jakob gerðum nánast ekkert nema að vinna og sofa í allt sumar. Gönguskórnir okkar sem við ætluðum aldeilis að nýta stóðu óhreyfðir inni í geymslu í allt sumar. Fólkið sem ég ætlaði að heimsækja reglulega fékk ekki eina einustu heimsókn (Esther og Jón -þið eigið mest í þessu) og allar fríhelgarnar sem ég hafði hugsað mér að djamma á voru samtals tvær. Það sem bjargaði þessu þó var gríðarlega hresst og skemmtilegt samstarfsfólk á sjúkrahúsinu auk þess sem ég safnaði gríðarlega miklu bæði í reynslubankann og banka-bankann. Vel þess virði.
-Hressasta helgi sumarsins og annað af þessum 2 “djömmum” var um Frönsku dagana á Fáskrúðsfirði. Þar var öll föðurfjölskyldan mín samankomin í fyrsta skipti í fjööööldamörg ár og ég held að það sé óhætt að fullyrða að við höfum skemmt okkur fyrir öll árin sem við vorum búin að missa úr. Við Jakob áttum miða á Damien Rice og fleiri í Bræðslunni á Borgafirði eystri á laugardagskvöldinu, en þegar á hólminn var komið þá tímdum við bara alls ekki að yfirgefa Frönsku dagna og seldum miðana okkar þegar nokkrir klukkutímar voru til stefnu. Sáum ekkert eftir því. Það er kannski of langt mál að útskýra nákvæmlega hvað og hvernig það atvikaðist að við Jakob fórum á djammið á laugardeginum í þessum íþróttagöllum, en við keyptum þá glænýja á lagerúthreinsun í Viðarsbúð á 400 kall stykkið. Héldum frekar góða sýningu/kennslu í breikdansi fyrir fjölskyldumeðlimi og aðra gesti sem áttu leið að Hlíðargötu 20.
Við eigum mjög fáar myndir af þessu sjálf þannig að ég stal þessari hjá Jónu og Rúnari.
-Ég byrjaði að vinna á Vökudeildinni á LSH síðasta mánudag og fyrsta vikan er búin að vera alveg ótrúlega skemmtileg. Ég er alltaf spennt að fara í vinnuna og kem heim brosandi allan hringinn eftir að hafa verið innan um þessi agnarsmáu og yndislegu kríli.
-Við keyptum okkur íbúð í dag og eyddum ekki meiri tíma í það heldur en ef Jakob hefði verið að kaupa sér nýja skó! Við fórum að skoða íbúðina klukkan fjögur. Gerðum kauptilboð um klukkan sex og fengum það samþykkt fyrir klukkan átta. Jáhh…hann Jakob getur sko verið leeeeengi að kaupa sér skó. Bæði notar hann mjög stóra og svo er hann alveg óendanlega vandátur á skófatnað. En við flytjum vonandi inn í íbúðina í lok vikunnar. Hún er í Norðlingaholtinu í götum sem við höfum ákveðið að kalla Ballarhaf frekar en Bjallavað. Það verður svo ljúúúúft að eiga loksins heima einhverstaðar fyrir alvöru.
-Það eru bara tvær vikur þangaðtil við Jakob förum til Suður Afríku…þannig að það er gríðarlega margt að gleðjast og spennast (?) yfir þessa dagana


3 comments
Comments feed for this article
september 8, 2008 kl. 11:37 pm
Hannsína Löve frænks
Sælar….já til hamingju með íbúðina, gaman að hafa verið að tala við þig akkúrat þegar tilboðið var samþykkt og auðvitað er best við þessa íbúð hvað hún er nálægt mér…..gaman að fá ykkur sem nagranna…..og erum við að grínast með hvað var gaman á frönsku…þið voruð auðvitað flottust í þessum grænu adidas göllum…..sjitt já viðarsbúð klikkar seint…hvað skildi viðar segja við þessu…hehe….
ertu búin að segja gunnu sorgarfréttirnar fyrir hana….missir bæði þvottavél og þurrkara á einu bretti..hehe…. kveðja, hanna panna, pottur og kanna
Vona að þið kíkið við á ættarmótakaffinu á lau….hafið það gott…sjáumst sem FYRST!!
september 12, 2008 kl. 3:40 am
Vala
vó – íbúð – Afríka- viljiði ekki bara skjótast hingað í leiðinni fyrst ævintýraþráin er komin yfir ykkur;)
til lukku með allt saman!
gallarnir eru trylltir
Asíukveðjur
september 12, 2008 kl. 12:06 pm
Anna Sigga
til haaaaaamingju með þetta allt saman elskurnar! hlakka til að koma í heimsókn, leggja í bílakjallarann og svo þegar við stöllur erum búnar að slúðra, verður Jakobar Ni búinn að bóna bílinn minn