Helgina 12. til 13. júlí skruppum við Jakob suður í brúðkaup hjá Bergrúnu systur hans og Helga Má. Páll Óskar og Monica sungu nokkur lög í kirkjunni sem var æðislegt. Brúðhjónin voru óendanlega fín og brúðarmeyjarnar algjörar dúllur. Veislan var eitt allsherjar stuðpartý langt framá nótt og skemmtiatriðin voru þau allra hressustu sem ég hef séð, hefði ekki getað verið betra.

Ég greip brúðarvöndinn, en hélt ekki nema nokkrum blómum eftir að hann var hrifsaður af mér. Gerði mér ekki grein fyrir því hversu hart og lengi er barist um þennan vönd :) Hef þó ekki miklar áhyggjur af þessu þar sem við erum jú búin að bóka kirkjuna og enn er ekkert nema matur í maganum á mér.