Las það inná mbl í gær að Frank Lampard væri búinn að skrifa undir hjá Inter. Þetta eru nærst verstu fótboltafréttir sem ég hefði getað hugsað mér að lesa. Eina sem gæti toppað þetta væri ef John Terry væri á förum. Mér sýnist samt að þeir hafi verið full fljótir á sér hjá Mbl þar sem þetta er ekki alveg frágengið…en samt ekki ólíklegt að af þessu verði. Ömurlegt, ömurlegt, ömurlegt.

Drogba og Anelka eru allt annar handleggur, mín vegna má selja þá eða gefa hvaða félagi sem er.

Úr því að ég er byrjuð á ömurlegum fréttum þá má einnig taka það fram að ég er að fara í stelpupartý í kvöld og í tilefni dagsisns vaknaði ég auðvitað með risastórt kýli öðru megin ofan við efri vörina. Þegar ég er búin að setja á mig púður til að fela það myndast svona líka hress dökkur blettur þannig að ég er eins og ég sé með mústass öðrumegin og það er auðvitað baaara fallegt! :)