Eftir laaaaanga bið er loksins búið að leggja nettengingu í litla húsið okkar á Neskaupstað. Rúmlega tveggja vikna netleysi hefur verið hræðileg lífsreynsla og ég held að ég hafi ekki áttað mig á því fyrr en núna hversu hræðilega háð ég er internetinu.

Lífið hérna á Nesó er búið að vera ljúft. Við Jakob og Líf erum nánast eingöngu búin að vinna, sofa og horfa á EM auk þess að fara í maaaarga góða göngutúra. Þegar EM klárast stendur til að auka virknistigið töluvert og gera hluti sem þykja almennt hollari og skynsamlegri heldur en að hanga yfir fótbolta og fótboltaumræðuþáttum alla daga.

Við skruppum norður um helgina og ég var útskrifuð sem hjúkka. Á þessum tímamótum verð ég að viðurkenna að það sem er mér efst í huga eru næstu jól. PRÓFALAUS JÓL!!! Næstu jól verða sko mestu og bestu jól allra jóla. Ég ætla að byrja að baka um leið og fyrsta jólaskrautið kemur í Kringluna og Smáralindina eða fyrsta jólalagið heyrist í útvarpinu -hvort heldur sem er á undan. Ég ætla að horfa á allt jóladagatalið í sjónvarpinu, kaupa mér jólatré og vera búin að redda öllum jólagjöfum löööngu fyrir Þorláksmessu, auk þess að eyða talsverðum tíma og pælingum í pökkun og skreytingar. Get ekki beðið :D

Útskriftardagurinn sjálfur var samt æði, veðrið var allt of gott og við vorum allar æði fínar! Svo fannst mér líka gaman að ég fékk verðlaun fyrir besta árangur í Heilsugæslufræðum, kannski ekkert svakalega merkilegt, en gaman samt. Takk til allra sem hafa nennt að hlusta á mig röfla síðustu fjögur árin, nú er þetta loksins búið! ;-)