Svo lengi sem ég man þá hef ég algjörlega hatað Star Wars myndirnar, svona geim-dót er bara ekki my-thing. Ég hef rifist og skammast yfir því við mjög marga hvað þessar myndir séu óendanlega leiðinlegar, fussað og sveiað yfir fólki sem lifir sig algjörlega inní þennan heim og alltaf verið snögg að skipta um stöð ef þær hafa verið í sjónvarpinu. Ég tel mig þessvegna hafa sýnt gríðarleg þroskamerki um daginn þegar ég ákvaða að drífa í að horfa á allar þessar myndir og sjá what all the fuss is about og geta þá hraunað yfir Star Wars aðdáendur vitandi hvað ég er að tala um! Ég fékk Jakob í lið með mér að horfa á allar sex myndirnar og hann stóð sig þvílíkt vel í að halda mér vakandi á meðan ég var að koma mér upp þoli gagnvart geim -bardögum,-vélmennum og hinum ýmsu þjóðflokkum sem finnast í Star Wars heiminum.
Þar sem ég hef auðvitað ekki séð neitt af þessu þá gat ég horft á myndirnar í réttri röð út frá sögunni en ekki hvenær myndirnar voru gerðar. Flestir hafa séð eitthvað af gömlu myndunum eða þekkt söguna eitthvað og séð fyrir mikið af því sem gerðist í nýju myndunum. Ég hafði hinsvegar ekki hugmynd um hvað var í gangi og var til dæmis mjög brugðið þegar krúttið hann Anakin sneri baki við Jedi-unum og gekk í lið með illmennunum, akkúrat þegar hann átti von á tvíburum með skvísunni henni Natalie Portman. Það var algjörlega óhjákvæmilegt að lifa sig inní þetta, þessar myndir eru auðvitað klassík og ég er hætt að prumpa um að þetta sé leiðinlegt…þó að ég hafi á köflum átt mjög erfitt með að horfa á löng bardagaatriði og hlusta á eitthvað geim-tal.
Þar sem ég hef tíma fyrir svona vitleysu þarf örugglega ekki að taka það fram að lokaverkefnisvinnan gangi eins og í sögu!
Ritgerðin er löngu tilbúin í öllum aðalatriðum og við erum bara búnar að vera í rólegheitunum að fínpússa. Gripurinn fer vonandi í prentun fyrir helgi og þá er þetta búið, BÚIÐ!!!!!!!


1 comment
Comments feed for this article
maí 9, 2008 kl. 10:05 am
Annska
á dauða mínum átti ég von, en að þú myndir horfa á Star Wars - seint hefði ég búist við því! nú dámar mér!
..ég hlakka óstjórnlega til að fá ykkur suður! =)