Baddý vinkona mín fékk nýlega myndavél að gjöf frá ástmanni sínum. Það er verra að hún er viðbeinsbrotin og getur því ekki loftað myndavélinni í bili. Ég finn það á mér að um leið og brotið grær þá verður sko farið í ófáa ljósmyndaleiðangra. Við vorum mjög öflugar á því sviði síðastliðið sumar þrátt fyrir að eiga þá bara partýmyndavélar. Núna þegar við eigum báðar betri græjur þá er bara að fínpússa hæfileikana. Ég er byrjuð að hita upp og nýtti tækifærið á meðan minn heittelskaði horfði á körfuboltaleik og tók myndir af því litla lífi sem eftir var í blómavendi sem mér var gefinn um páskana.

…..og svo gerði ég líka flickr síðu, loksins! Var orðin alveg skelfilega útundan í því…allir með svoleiðis nema ég, þangaðtil núna!

4 comments
Comments feed for this article
apríl 2, 2008 kl. 8:55 pm
Anna Sigga
haha - mér finnst eins og ég hafi hjálpað til við að taka þessa mynd með því að segja þér skuggalega gott óléttuslúður í gegnum Jakob á msn á meðan þú varst að taka myndir
apríl 2, 2008 kl. 9:15 pm
Andrea
Var smá stund að fatta þennan…en Jakob hefur auðvitað sagt þér að ég hafi verið komin í sjálfheldu uppá eldhúsborði við að taka þessar myndir þegar hann tók að sér að segja mér slúður í gegnum þig
Það hjálpað svo sannarlega til að fá svona hressar fréttir…sem ég er reyndar ennþá að melta og á eftir að ræða við þig -milliliðalaust 
apríl 4, 2008 kl. 1:38 pm
baddy
ástmaður minn hehe skemmtilega orðað en jú rétt, kannski bara ástmaður með meiru svo yndislegur er hann
en já ég get ekki beðið eftir að geta loftað helv myndavélinni.. glápi á töskuna á hverjum degi og blótað því að hafa ekki styrk til að halda á henni!! össss… en það kemur að því. ég þarf líka að vinna í hugmyndaauðgi til að geta tekið fjölbreyttar myndir! þetta kemur allt með vorinu, ég finn það á mér 
apríl 10, 2008 kl. 6:24 pm
Hanna Lára
Hæhæ frænkukrútt….flott mynd hjá þér…. hvenær fæ ég að sjá þig næst??? ég kem norður 9-11 mai með stelpunum mínum úr kennó…verðuru heima þá??? en ji…..maður verður bara spenntur, slúður, hver er óléttur, er það þú Anna Sigga aftur??
hehe….maður nærist sko á góðu slúðri
en ég er flutt og hlakka til að fá ykkur í heimsókn til mín þegar þið komið suður…
jæja, verðum í bandi og gangi´þér vel með skólarest…kveðja Hanna Lára