Nokkrar ástæður fyrir bloggleti undanfarið:
-Lokaverkefnisvinna: Ég, Baddý og Sísí (+Aron Geir sem fær svo oft að vera með okkur) erum á góðri leið með lokaverkefnið okkar. Ótrúlegt hvað þessi ritgerðarlufsa þarf að vera ítarleg og nauðsynlegt að tíunda allavegana hluti sem mér hefði aldrei dottið í hug að þættu mikilvægir. Ég gæti ekki verið ánægðari með lokaverkefnishópinn, við Baddý erum búnar að vinna það mikið af verkefnum saman að stundum finnst mér erfitt að gera nokkuð án hennar….og Sísí og Aron Geir taka okkar sérþörfum alveg ótrúlega vel, eins og með það að rökhugsun okkar vaknar ekki fyrr en eftir kl10 am og þar af leiðandi er verkefnavinna fyrir þann tíma svolítið eins og að reyna að troða mör í milta!
-Reykjavíkurferð: Við skelltum okkur suður í nokkra daga. Jakob dæmdi körfuboltaleiki. Ég hitti einhverja, en samt allt of fáa af þeim sem mig langaði að kíkja á, verslaði smá, slakaði smávegis á, lék við sætu frænkur hans Jakobs þær Emblu og Júlíu og svo fórum við í fermingu hjá Unnari Heimi frænda mínum. Ég hlakka svo til að flytja til Reykjavíkur í haust og þurfa ekki alltaf að hitta alla á hlaupum heldur hafa nægan tíma fyrir allt og alla.
-Ræktin: Ég keypti mér kort í ræktina -believe it or not og það sem meira er, þá er ég búin að vera svo dugleg að fara. Ég, mamma og Baddý erum skráðar í Gravity tíma tvisvar í viku og svo förum við í ræktina þess á milli. Jakob er búinn að koma með okkur og komst að því að þetta er ekki bara fyrir kellingar heldur alveg heilmikið puð og miklar harðsperrur sem fylgja þessu. Ég er ekkert smá ánægð að vera loksins búin að finna einhverja hreyfingu sem mér finnst það skemmtileg að ég vilji alls ekki missa úr. Mánaðarkortið okkar á þetta námskeið klárast eftir tvær vikur og ég held að við séum allar sammála um það að halda áfram og bæta í og vera þrisvar í viku í Gravity.
-Þjófnaður: Símanum mínum og þónokkrum peningum var stolið um daginn. Síminn var seldur í skiptum fyrir eiturlyf og peningunum eytt í álíka gáfulega hluti; lyf, leigubíla og spilakassa. Ég er, og mun sennilega vera reið eitthvað áfram. Símann fæ ég aftur og þá verður hann sótthreinsaður rækilega áður en ég tek hann í sátt, en ég þarf sennilega að senda handrukkara á viðkomandi ef ég vil sjá þessa peninga aftur. Ég er samt eiginlega forvitnust að vita hversu mikið af eiturlyfjum maður geti fengið fyrir einn Motorola Razr síma?!
-Brúðkaup: Við Jakob skelltum okkur í messu um daginn til að skoða kirkjuna sem okkur langar til að gifta okkur í. Umrædd kirkja er Laugarneskirkja í Reykjavík og mér fannst hún alveg æðisleg. Jakob þekkti hana frá því að hann var lítill og svosem ekkert nýtt fyrir honum. Við ræddum við prestinn sem okkur langar að fá til verksins og okkur til mikillar hamingju þá smellpassar þetta allt saman. Við erum alveg að missa okkur útaf þessu og gætum ekki verið spenntari, enda byrjuð að plana strax. Við getum bara hreinlega ekki hamið okkur.
-Beibífíver: Mér finnst alveg hræðilega erfitt hvað það er mikið af litlum börnum í kringum mig og nánast allar vinkonur mínar óléttar eða alveg að verða óléttar. En ekki ég. Þetta veldur mér miklu hugarangri, en auðvitað er skynsamlegt að bíða aðeins.

6 comments
Comments feed for this article
mars 18, 2008 kl. 10:05 pm
baddy
já drea mín, ég veit ekki hvernig ég fer að ef ég þarf að gera einhver verkefni eftir útskrift!! ætli ég verði ekki bara að bjóða þér mjög oft í mat og meððí og plata þig í þetta með mér!!
hvað varðar beibífíverinn.. við skulum bara vera samferða í þessu
mars 19, 2008 kl. 12:59 pm
baddy
…já ég sem sagt skildi ekki þessa sneið til mín! úpps!
mars 19, 2008 kl. 2:47 pm
Andrea
…nei, þetta var náttúrulega lúmskt skotið
ég yrði samt glöð ef þið gætuð hamið ykkur í barneignum og þá getum við verið samferða þegar við eigum bæði fínar íbúðir í kópavogi 
mars 23, 2008 kl. 9:20 pm
Max
hi,I ‘m Max an italian blogger.
I don ‘t know you but I write you because it ’s a game in Italy.
I must meet three blogger in other country and you are the first blogger that I choose.
Excuse me but I don’t remember a lot of english language.
I hope you answer me in my blog,
I hope to meet you and became your penfriend (why not?).
I go now
Have you a nice day
Max
mars 25, 2008 kl. 8:02 pm
Anna Sigga
já plís bíði aðeins! ég þarf að finna mér einhvern til undaneldis áður en ég get verið samferða ykkur í þessu - fæðingarorlof er líka örugglega hundleiðinlegt ef maður hefur engan til að eyða þessum himinháum fæðingarorlofsgreiðslum með í Polarn’ o Pyret
mars 25, 2008 kl. 11:22 pm
Andrea
Ég væri alveg til í að það væri mitt helsta áhyggjuefni varðandi þetta allt saman; hvernig ég á að fara að því að eyða fæðingarorlofssjóðnum mínum!
Þú þarft engann mann, það verður bara næsti frelsari mannkynsins og hann mun búa í Kópavoginum og leika við mitt barn! 