Við Baddý gerðum okkur ferð austur á Neskaupstað í smá vinnu og læritörn. Við ætlum að vera hérna í tvær vikur, vinna eins og brjálæðingar og skrifa lokaritgerðina okkar á milli vakta. Það er vægast sagt æðislegt að koma aftur hingað, síðasta sumar var svo skemmtilegt að fyrir okkur er þessi fjörður bara stútfullur af skemmtilegum minningum. Starfsfólkið virðist líka allt vera mjög ánægt að sjá okkur og við erum knúsaðar og kysstar í bak og fyrir, sem er auðvitað alls ekki leiðinlegt. Ég er búin að ákveða að ráða mig aftur hingað í sumarvinnu en það er auðvitað verið að reyna að fá okkur til að gera samning til lengri tíma. Miðað við það hvað ég sakna Jakobs og Lífar mikið eftir eina viku, þá veit ég ekki hvort ég gæti lifað það af að vera í fjarvinnu lengur en eitt sumar…Undanfarið ár hef ég reyndar verið harðákveðin í því að sækja um í framhaldsnám í haust. Fyrir svona mánuði fattaði ég svo að það var bara alls ekki það sem mig langaði mest til að gera í lífinu að svo stöddu. Mig langar miklu meira til að eiga heimili, koma mér almennilega fyrir, vera á sama stað og Jakob í meira en mánuð í einu og eiga jól án þess að eyðileggja þau með prófastressi og þessvegna ákvað ég að fresta framhaldsnámi um óákveðinn tíma. Það væri þessvegna svolítið móðgandi við sjálfa mig ef ég réði mig á Neskaupstað og gæti ekki gert neitt af þessu sem ég fórnaði framhaldsnáminu fyrir!

Allavegana, fyrsta vikan hérna er búin að vera frábær. Við fengum voðalega lítið og sætt hús til að búa í og fyrsta mál á dagskrá var að sjálfsögðu að útbúa “vídjóherbergi” sambærilegt því sem við áttum hérna síðasta sumar. Það er voðalega ljúft að koma heim af vakt, hlamma sér niður á risastóra flatsæng og kúra yfir vel völdu sjónvarpsefni. Við Baddý héldum líka eitt dekurkvöld þar sem við pússuðum og gerðum “french” á táneglurnar okkar, losuðum naglabönd og annað, en ég hef aldrei í lífinu snyrt á mér táneglurnar…nema þá bara að klippa þær. Baddý átti síðan voðalega sætar myndir sem maður límir á neglurnar og setur naglalakk yfir. Í einhverju gríni þá setti ég mynd á stórutánöglina mína sem er svört skuggamynd af pari að dansa og svo er rautt hjarta í bakgrunninn. Af þessu tók ég svo mynd og sendi mínum heittelskaða til að sýna honum að hans verðandi eiginkona ætti á sér dömulega hlið. Stuttu seinna fékk ég símtal sem hófst svona: “HVAÐ KOM EIGINLEGA FYRIR???!!!”. Þá hélt hann að þetta svarta væri sár og að þetta rauða væri blóð….miklu líklegra heldur en að ég hafi verið að snyrta á mér táneglurnar. Auðvitað!