Ég og Baddý öfluðum okkur mikilla vinsælda hjá ástmönnum okkar um helgina þegar við buðum þeim í mat og í leikhús. Á matseðlinum voru lambalundir, bakaðar kartöflur, fylltir sveppir, ávaxtasalat og auk þess sveppasósa sem var svo góð að hún hefði hæglega getað verið aðalrétturinn….jeá, við erum sko ekki ónýtar í eldhúsinu. Í leikhúsinu sáum við Fló á skinni sem var algjör snilld, ég segi ekki að það hafi verið betra en Fullkomið brúðkaup, en allavegana í sama gæðaflokki.

Þetta er án efa það sem ég á eftir að sakna einna mest þegar ég flyt héðan, matur og leikhús í úrvalsgóðum félagsskap. Leikhúsið hérna er svo skemmtilegt, alltaf svo góð stemmning í þessum litla sal auk þess sem bæði leikararnir og leiksýningarnar hafa verið alveg frábærar. Ég skil allavegana vel fólk sem kemur hingað í helgarferðir í leikhús, ég verð örugglega ein af þeim, allavegana eru það ekki skíðabrekkurnar sem kem til með að sækja í…

.leikhus-005.jpg

Hresst gengi á leiðinni í leikhús….Jakob að sjálfsögðu á bak við myndavélina.