Samkvæmt fína Spiderman dagatalinu sem ég keypti í Bandaríkjunum í sumar, þá er Groundhog day í dag. Groundhog day hefðin er svona: ef groundhog-inn sér skuggann sinn þá bíða okkar sex vikur í viðbót af vetri en ef hann sér ekki skuggan þá kemur vorið snemma.

Þar sem við Jakob höfum ekki aðgang að alvöru groundhog, eins og Punxutawny Phil (úr myndinni, þið vitið!)…þá fórum við út með hundinn okkar í morgun til að athuga hvort hún sæji skuggann sinn. Það er mér sönn ánægja að tilkynna ykkur það að hundurinn myndaði engan skugga og því spái ég, samkvæmt Groundhog day hefðinni, að vorið komi snemma í ár ! :)

Í tilefni dagsins ætlum við að horfa á myndina Groundhog day í kvöld, mér finnst hún alveg svakalega skemmtileg og auðvitað vel við hæfi að horfa á hana á þessum degi.