Í gær átti ég minn fyrsta aðfangadag annarstaðar en heima hjá mér og hann var hreint út sagt yndislegur, enda hálfgert svindl að segja að ég hafi ekki verið heima hjá mér þar sem ég hef meira og minna búið hjá mínum verðandi tengdaforeldrum frá því að við Jakob kynntumst. Auðvitað saknaði ég foreldra minna og systkina heil ósköp, en ég sannfærðist enn frekar í því sem ég vissi auðvitað fyrir -að ég á bestu og yndislegustu tengda-fjölskyldu í heimi. Við Jakob töfruðum fram alveg frábærlega vel heppnaðan kalkún í jólamatinn og það kom okkur hressilega á óvart hversu góðir kokkar við erum þegar kraftar okkar eru lagðir saman. Ég sá um að elda og vökva flykkið, gera sósuna og kartöflurnar en Jakob fékk það mikilvæga hlutverk að útbúa fyllinguna. Það var vel við hæfi að við færum að kynna okkur þennan þjóðarmat bandaríkjamanna þar sem við erum staðráðin í því að flytja til San Francisco fyrr eða síðar, en ég held að allar bandarískar húsmæður hefðu getað verið stoltar af því að bera fram kalkúninn okkar. Pakkaflóðið þetta árið var svakalegt, virtist óendanlegt um tíma vegna þess að bæði fengum við alveg rosalega marga og góða pakka en auk þess fékk hún Líf fullt af pökkum og við erum enn að reyna að koma þökkum á rétta staði.
Vona að þið hafið öll átt yndisleg jól og njótið þess sem eftir er af hátíðunum. Set þessa mynd með af jólahundinum okkar, hún fór á jólakortin í ár…já við erum alveg að missa okkur yfir þessum hundi, hún er bara svo mikið æði að það er ekki annað hægt!


5 comments
Comments feed for this article
desember 27, 2007 kl. 9:33 am
Anna Sigga
æj Líf er bara svo sæææææt!
hlakka til að sjá ykkur í kveld, heimta að hitta Líf líka! =)
desember 27, 2007 kl. 1:43 pm
Eydís Ósk
Þetta er án efa sætasti hundur sem ég hef nokkurn tíman barið augum:) Gleðileg jól og farsælt komandi ár…:D
janúar 2, 2008 kl. 4:17 pm
baddy
gleðileg jól elskan og takk fyrir allt gamalt og gott.. þetta ár var alveg ótrúlega skemmtilegt og fljótt að líða og eigið þið karó stóran þátt í því. takk fyrir frábært ár elskurnar:D
áramótakveðja frá DK
sjáumst fljótlega í borginni
kv baddy
janúar 4, 2008 kl. 3:33 pm
Sigurlaug og bumbós
gvuð hvað hún er orðin stór, hún er algjör snúlla:9 Enda frænka hans gutta hehe
janúar 4, 2008 kl. 6:41 pm
andrealk
haha, pottþétt frænka hans Gutta!:) hún getur boðið Gutta í hundamat, svínseyra eða frostþurkaða kjúklingafroðu næst þegar við förum á kaffihús!