Ég las þessa fyrirspurn um daginn og fannst hún frekar ómerkileg, enda hafa þær hjúkkur sem ég hef rætt þetta við allar verið sammála mér í því að hafa aldrei lagt neitt aukalega á sig við að finna föt í einum eða öðrum lit á nýfætt barn, oftast er bara gripið í það sem hendi er næst og er í réttri stærð.

Þetta greip ég svo úr námsefninu mínu….

“Brjóstagjöf er fyrst og fremst leið til að ná sambandi við aðra manneskju og jafnframt leið til að elska hana, eins og konum einum er tamt” (Sheila Kitzinger).

Nú velti ég því fyrir mér hvort að Kolbrún Halldórsdóttir og aðrir feministar eigi börn og ef svo er, hvernig fóru þær að því að gæta jafnræðis gagnvart maka sínum með tilliti til þessa? Það væri verulega ósanngjarnt gagnvart barnsfeðrum þeirra ef þær nýttu sér þau forréttindi sem kyn þeirra veitir þeim til þess að mynda tengsl við barnið sitt…eða hvað?