Það er komið smá jólalúkk á síðuna, ákvað að setja mynd úr The Polar Express sem er ein af mínum uppáhalds jólasögum. Bókin hefur verið til heima hjá mér frá því að ég man eftir mér og hún er svo ótrúlega fallega myndskreytt að ég kemst í jólaskap við það eitt að hugsa um hana. Þessi mynd er samt örugglega úr bíómyndinni sem var gerð fyrir nokkrum árum. Við Jakob horfðum á hana um jólin í fyrra og hún er alveg yndisleg og kom mér í alveg jafn mikið jólaskap og bókin góða. Fyrir ykkur sem þekkið ekki söguna, þá skulið þið endilega kynna ykkur hana um þessi jól.