Það er kominn vetur og það er komin hálka. Við Jakob keyrðum frá Akureyri til Reykjavíkur á föstudaginn. Eins og sönn sveitastelpa þá skoðaði ég að sjálfsögðu færð og veðurspá áður en við lögðum af stað. Í framhaldi af því ákváðum við að setja vetrardekkin undir sem reyndist vera afskaplega gáfuleg ákvörðun, enda vorum við ekki í hópi þeirra fjölmörgu Íslendinga sem keyrðu útaf þann dag. Í nótt vorum við að keyra heim í Kópavoginn eftir sérlega skemmtilegt útskriftarpartý hjá Völu þegar önnur Almera kemur dansandi niður brekku, skautar yfir á rauðu ljósi og smellhittir Almeruna okkar í framhurðina bílstjóramegin. Við reyndum eins og við gátum að afstýra þessu á vetrardekkjunum okkar en hinn bíllinn var algjörlega stjórnlaus á rennisléttum sumardekkjum. Stelpurnar komu út úr bílnum voðalega æstar yfir því að bremsurnar á bílnum þeirra hafi einhverra hluta vegna ekki virkað, minna að spá í að brekkan sem þær keyrðu niður var eins og fínasta skautasvell!
En ég ætla ekki að vera mikið pirruð yfir þessu vegna þess að akkúrat á þessari sömu hurð var minniháttar áverki eftir að ég var kærulaus í bakkgír eitt augnablik síðasta sumar. Tjónið var undir sjálfsábyrgð og við frestuðum því alltaf að láta gera við það. Núna fáum við þetta allt viðgert og það frítt! Kaskó er æði!

1 comment
Comments feed for this article
október 28, 2007 kl. 9:08 pm
jakobar
Það er vita það nottla allir að í frosti og hálku þá geta bremsur bilað fyrirvaralaust! En ég viðurkenni fúslega að ég hefði hæglega getað verið einn af þeim sem keyrðu útaf á föstudaginn því ég var ekki búin að spá mikið í því hvort það gæti verið hálka á leiðinni. Það kemur sér því mjög vel að eiga góða og framsýna konu sem veit hvenær þarf að setja naggladekkin undir. Mæli með góðum konum frá Austulandi